Okkar
þjónusta
Strategía er sérhæft ráðgjafafyrirtæki sem veitir fjárfestum, stjórnum og stjórnendum ráðgjöf - með áherslu á stefnumótun, skipulag, stjórnarhætti og fjölbreytta stjórnunar- og rekstrarráðgjöf.
Ráðgjafar Strategíu búa yfir áratuga reynslu af fjármálamörkuðum, stjórnarsetu og stjórnun innan fyrirtækja og stofnana.
Stefnumótun og innleiðing
Strategía býður upp á sérsniðnar lausnir við stefnumótun og stjórnun breytinga. Markvisst innleiðingarferli gerir fyrirtækjum og stofnunum kleift að ná skilgreindum markmiðum.
Skipulag
Strategía aðstoðar við endurskoðun skipurita og innra skipulags þannig að það styðji við virka innleiðingu á stefnu fyrirtækja eða stofnana. Strategía veitir einnig sveitarfélögum ráðgjöf varðandi endurskoðun á stjórnskipulagi.
Stjórnarhættir og lögfræði
Strategía veitir lögfræðilega ráðgjöf með áherslu á vandaða ákvarðanatöku og virðisaukandi og árangursríka stjórnarhætti.
Stjórnunarhættir og rekstur
Strategía veitir stjórnum og stjórnendum fjölbreytta ráðgjöf varðandi stjórnun og rekstur fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga. Bjóðum ráðgjöf tengda fjármálum og árangursmælikvörðum, breytingum á rekstrarfyrirkomulagi, stjórnunarháttum, stjórnunarkerfum og verkefnastjórnun.